föstudagur, 4. mars 2011

Eitt og annað

Á Orkusetur.is má finna nokkrar reiknivélar.
Hjóla- og göngureiknir: Hér er hægt að sjá hversu mikið er hægt að spara af eldsneyti og útblæstri ef bifreiðin er skilin eftir heima. Einnig má sjá áætlaðan kaloríubruna ferðarinnar enda er verið að brenna líkamsfitu í stað hefðbundins eldsneytis.

Hjólavefsjáin finnur út bestu leiðina milli A og B. Síðan/forritið býður upp á 3 útgáfur af hverri leið; bein leið, örugg leið og öruggari leið. Hverri leið er svo lýst bæði með orðum og sýnd á korti.
Enn sem komið er virðist hjólavefsjáin aðeins bjóða upp á höfuðborgarsvæðið og Akureyri.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli